Sælir félagar.
Þetta leit ekki vel út kl.10:00 þegar við vorum á stöðinni.
Það var ákveðið að fara bara í Mosó og taka stöðuna þar.
Engin rigning og ákveðið að fara á Skagann um göngin,fint veður og Borganes var
næsti staður,komið hádegi og menn svangir.
Síðan var haldið heim á leið um Hvalfjörð,það var svolítill hrollur í okkur
hitinn var frá 7 til 10 gráður.
Við fórum 6 að hjóla 5 í Hafnarfirði og einn í Hveragerði,Einar Lyng ætlaði að koma
en ákvað að hjóla bara fyrir austan.
Kv.S.A.