Fyrst Hjörleifur er farinn að rifja upp gamlar sögur og myndir frá því uppúr miðri síðustu öld, þá er ekki úr vegi að stofna hér nýjan þráð þar sem menn, og konur, eru hvattir til að setja inn gamlar myndir af tækjum og tólum þegar við vorum að byrja í bransanum. Ekki spillir fyrir að eiga eitthverjar skemmtilegar sögur.
Ég læt hér fylgja með eina mynd sem er sennilega tekin 1983, Hondan er 750 árgerð 82 og átti ég hana í 3 ár að mig mynnir. Ég keypti hana nýja og kostaði hún 59.500. Þarna er ég búin að setja á hana Vanes&Hines flækjur og var keyrt alla daga með lúðurinn opin, og þótti allveg gríðalega flott. Allavega þótti mér það.
Ég fór nokkrum sinnum á henni á míluna og náði að mig minnir 12,73 og sigraði nokkrar mílur. (Það hafa fleyri en Castró fengið bikar á mílunni) enda hjólið heil 77 hestöfl.
Novan í árgerð 74 og keypti ég hana af Væa vini mínum, hún var með 350 4 bolta og 4 hólfa vél, orginal vél úr Blaizer að mig mynnir. Hún var high performance heil 325 hestöfl og skilaði allveg gríðalegu afli á þeim tíma þegar hún var í lagi, sem var sjaldan,
gekk á ýmsu með þennan bíl, vélin frostsprakk, ég fékk nýja blokk, þá lenti ég í árekstri, og eftir það var hann seldur, og fór að ég held ekki á göguna eftir það, hefur sjálfsagt verið rifin.