Gerði það sama og S.Stormur. Sleikti vísifingur hægri handar, rétti hann upp í loft og fékk þessa flugu í höfuðið. Óska sér nógu mikið - þá rætist það. Hrikalegt að hafa aðeins náð að hreyfa hjólið um 1 km síðan í september!!
Annars fékk ég í dag að horfa á einn örlítið "skakkan" dromma glæsilegum svörtum Benz beint á ljóstastaur á Vesturlandsveginum núna um kvöldmatarleytið eftir sikk sakk akstur. Hann naut þó verndar æðri máttarvalda og gekk heill frá öllu.
Nóg um það. Það eru 13 dagar í hjólun og hana nú. Rektu á eftir þessum sprautara þínum. Ef þú þarft hjálp, þá er Sigurjón með númerið mitt. Koma svo!