Gamalmenni!
Góður. Þannig að það að hanga á hjólinu verður þinn radarvari!! Ekkert út á það að setja. Ég er náttúrlega svo mikill skrokkur að þetta er spurning um að hjólið mitt hafi það í 120 eða 220 með alla vindmótstöðuna, jafnvel þótt ég hafi beygt mig niður:lol:
Fannst ég kannast við orignal myndirnar af hjólinu. Þetta er glæsifákur og sölumaðurinn við hinn endann þá bróðir minn, sem nú hefur flutt inn hjólið sem ég sýndi hérna fyrr á spjallinu. Þetta eru snilldarhjól 1800F. Langflottustu VTX-arnir. Sorry þið sem eigið aðrar týpur!
Annars er þetta merkilegt með spjallið hérna ekki sjást á því aðrir Gaflarar, ekki einu sinni formaðurinn.
En Beggi minn, þú hefur nú eftir því sem mér reiknast 9 daga, til að koma fáknum í stand fyrir skoðunarferðina góðu. Sýnist að veðurguðirnir séu með mér í liði dag, hvað svo sem verður í framhaldinu. Það þarf allavega næga rigningu til að snjó taki upp úr botnlanganum heima hjá mér, enda bý ég í útnára stór Hafnarfjarðarsvæðisins.