Formamðurinn spyr um "Ljósanótt". Það fóru þó nokkuð margir Gaflarar suður með sjó, fyrst í grillið hjá Örnum og Olís og síðan í hópaksturinn frá Olís og hringinn til Sandgerðis og yfir í Garð og svo var áð hjá Samkaupum í Keflavík og þaðan ekið Hafnargötuna í gegnum mannfjöldann (sem var magnað)og á planið við SBK / Duus hús þar sem hjólin og við vorum til sýnis.
Gaflarar voru mjög sýnilegir því margir okkar voru með fána klúbbsins.
kveðja
gjaldkerinn
ps. formaðurinn var að "spyrna" í kvartmílunni og kom því ekki í þennann góða túr.
Við fyrirgefum honum það því hann náði sínum besta tíma til þessa á Road Runnernum.