Sælir og sælar öll.
Þar sem ég er blautur á bak við eyrum í þessum fína hjólaklúbb er að spá í staðsetningu á merki félagsins. Sé ekki undir lögum félagsins að það eigi að vera á ákveðnum stað og sýnist á myndum að það sé ýmist á hægri eða vinstri öxl og jafnvel framaná jakka, ef mér ekki skjátlast. Sniglamerki ber að vera á vinstri öxl og því lítið úrval af handleggjum eftir til að setja Gaflaramerkið á.
Er einhver óskrifuð regla um staðsetningu eða ræður maður í raun bara hvar það er, eðlilega innan skynsemismarka.
Kv
Pétur Elínar.