Ágætu félagar
Farið var að dreyfa áburði á svæðið sem Gaflarar hafa tekið í fóstur sem hluta af verkefni mótorhjólamanna með Hekluskógum nálgæt Sultartangavirkjun.
Var dreyft úr einum 600 kg. sekk með aðstoð Gísla í Nexus sem var á 6 hjóli.
Einnig voru ca 150 birkiplöntur gróðursettar.
Nokkrar myndir má sjá í myndaalbúmi og þar sést hvernig plönturnar og svæðið er að koma til.
Þetta verkefni er klárlega að gera sig og skila árangri.
kveðja
Formaðurinn og Gjaldkerinn