Sælir félagar
Við fórum 2 til Vestmannaeyja. Það reyndi vel á goretex gallana því það var mikil rigning og rok á leiðinni um morguninn. Leðurhanskarnir voru eins og rennblautur svampur við komuna í Herljólf. Spyrnan fór fram í Eyjum milli bræðranna og Honda CBX-inn hafði litlu systurina, CB750. Flottir dótakassar hjá þeim á suðureyjunni.
Ferðin heim var minna blaut.
Það koma myndir mögulega í kvöld inn í myndasafn.
þannig að ef enginn annar Gaflari fór að hjóla á laugardag þá telst þetta "fyrri dagsferðin".
Kveðja
Gulli og Pálmi