....þvílík sjón.... ég sem var í sakleysi mínu á rúntinum niðri bæ, staðsettur efst á laugarveginum, sé ég þennan mikla ORANGE glampa leggja upp frá Aðalstrætinu. Aðdráttaraflið var þvílíkt að ég gat ekki annað en keyrt í átt að planinu þar sem við mér blasti "Project Orange" komið á götuna.
Til hamingju félagi. Glæsilegt hjól sem á engan sinn líka. Maður hálf skammaðist sín fyrir að vera ekki í hjólagallanum, en það þykir víst ekki hentugur fatnaður þegar maður er að fara með frúnna út að borða. Sérstaklega ekki að vera með hjálminn
Mjög flott custom hjól vel unnið og búið að huga að mörgum flottum smáatriðum s.s. afturljósum, númeraplötu, hrúga af krómi o.s.frv. Og auðvitað einkanúmer!! Glæsilegt!!