Af gefnu tilefni vil ég benda félagsmönnum á að "aftermarket anodized aluminium" vatnskassahlífar eru ekki bara til skrauts. Það er nú eiginlega Smára að þakka að við stoppuðum þarna við fossin í Hvalfirðinum í gær, og að ekki fór verr, því þá uppgötvaðist að það var komið gat í eina vatnskassapípuna, eftir grjót. Original hlífin er úr plasti og brotnaði þar sem steininn lenti, gagnslaust plast. Ferðin gekk vel heim aftur, enda var annað augað á hitamælinum og hitt á veginum. Góð kæling alla leið.
Ég reif vatnskassan úr og er hann í viðgerð, (nýr kostar 97.000.-)
Þannig að ég fjárfesti í vatnskassahlíf með þekktri aðferð sem heitir "Buy it now". Verð klár með þetta á næsta góðviðrisdegi.
Tóti