Á laugardaginn tóku nokkrir Gaflarar sig saman og hjóluðu suður með sjó.
Hjóluðum Vatnsleysuströndina og kíktum í VP mótorhjólabúðina í Vogunum
(búð sem kemur á óvart).Síðan var farið í aðra mótorhjólabúð Ice Bike í Keflavík
(þetta var orðin verslunarferð).Svo var tekið kaffi í Dushúsinu.
Svo í dag rúlluðu nokkrir Gaflarar Hvalfjörðinn, kaffi tekið í Ferstiklu
túrunn var kláraðu niðri á gamla góða Halló og þar aftur tekið kaffi til að reyna að ná lífi í puttana.
Þetta voru góðir en kaldir túrar.