Af öðrum þræði:
Hvernig væri að starta umræðu um fyrsta hjólið
sem menn áttu.
Kv.Formaðurinn.
Mitt fyrsta hjól (að Hondu SS-50 undanskilinni) var 198ogeitthvað módelið af Yamaha TR-1.
Um það bil sami mótor og í Virago, rúmtak á við hálfa tveggja lítra kókflösku og mér fannst krafturinn gríðarlegur........í viku. Þá var mann farið að langa í annað og öflugra. Hjólið mitt var grátt og guggið eins og það sem er hér að ofan. Ég lét sprauta það svart og þóttist heldur en ekki vera töffari.
TR-1 var annars ágætt hjól, þægilegur krúser og með framljós á við Galtarvita. Þykir ekki hafa elst vel og í dag eru það helst Þjóðverjar með nostalgíu og vaxborið yfirskegg sem aka um á svona hallæristæki.