Ég hélt að bifreiðaskoðunarstofurnar (Aðalskoðun í Hafnarfirði) væru ekki með græjur til að mæla þetta og væri ekki að gera athugasemdir útaf þessu. Ég er með orginal Screaming Eagle púst frá Harley-Davidson og ég veit að hávaðinn í því liggur akkúrat við mörkin, sem Evrópusambandið hefur í reglugerð. Er þetta ekki bara spurning um að fá skoðun á hjólið ? Og svo er það meira töff með svona sound og það er heilmikið öryggisatriði í umferðinni að það heyrist vel í hjólinu.
Og annað atriði.... væri ekki ástæða fyrir Klúbbinn að fá skoðunardag hjá Aðalskoðun í vor ? Ég held að langflestir séu með skoðunarmánuðinn á vorin, eða hvernig ætli það sé ? Ég átti fyrir nokkrum árum stóran BMW, sem ég keyrði bara maí- september, sömu mánuði og mótórhjól. Hann var með ágúst sem skoðunarmánuð... og ég komst upp með að skoða hann annað hvert ár og ekkert ólöglegt við það.