Jæja, svona til að halda manni við efnið og formaðurinn geti andað niður um hálsmálið á mér, þá legg ég hér í dóm félagsmanna eitthvað sem ég vil kalla verkefnið "Yellow Submarine".
Um er að ræða dýrasta mótorhjól landsins - sem á nú skilið að fara í smá andlitslyftingu, enda er mun meiri tíma eytt í það í skúrnum en á götunni.
Þetta yrði að mínu viti fyrsti guli Roadlinerinn hér á landi.
Bið menn um að vera ófeimna að tjá sig, ef þeir hafa eitthvað um málið að segja......
en annars er það bara....we all live in a yellow submarine....