Hérna er athyglisverð fréttaskýring á þessu. Ekki einn einasti ,,uppfinningamaður" hefur getað sýnt óháðum aðila fram á að neitt af þessu virki. Það er aragrúi af alls konar drasli til sölu, og flest á það eitt sameiginlegt að virka alls ekki neitt. Tökum vetnisinnspýtinguna. Til að rafgreina vetnið þarf mikið rafmagn. Alternator undir öllu þessu álagi þyngir mótorinn og allur ávinningurinn fer í að knýja þennan aukna þunga á reimarnar. Einungis væri raunhæft að vera með vetniskút og fylla skottið, og sleppa þessum skottulækningum.
Það hefur verið lofað verðlaununm (MsNBC býður $10.000) þeim sem geta sýnt með óyggjandi hætti fram á að vetnisrafgreining virki sem eldsneytissparnaður. Enginn hefur gengið út með það verðlaunafé.
Oft kaupir fólk kraftaverkahluti sem eiga að minnka bensíneyðslu. Sjaldan eða aldrei hefur verið opnari markaður fyrir töfralausnir en akkúrat núna. Oft minnkar eyðslan í kjölfarið, ekki vegna hlutarins heldur er fólk sem kaupir þetta mjög meðvitað um eyðsluna og ekur öðruvísi. Staðráðið í að láta dæmið ganga upp.
Það er gríðarstór markaður tilbúinn að kaupa svona uppfinningu ef hún gengur upp. Ekki olíufélögin heldur stóru bílaframleiðendurnir. Þeir hafa þó ekki keypt neitt en halda áfram píslargöngu sinni með sparneytnari vélar og tvinntækni.
Bara mín skoðun...