Hef verið að velta fyrir mér, þar sem ég og allflestir hjólamenn lenda í því að það sé svínað fyrir okkur, að við myndum taka upp einsog gert er í USA að hafa stefnuljósin sílogandi með aðalljósunum, að auki hafa þeir gul glitaugu að framan og rauð að aftan. Með þessu ættum við að sjást betur. Svo er spurning um reglugerðir og svoleiðis en ég hef ekki skoðað það neitt, einnig er spurning um tæknilegu hliðina, þá varðandi alternatorinn og rafgeyminn. En fyrst þetta gengur í USA, getum við þetta líka, og er sjálfsagt lítið sem ekkert mál að framkvæma þetta á hverju hjóli fyrir sig.
Ég varpa þessu svona inn hérna til að leita eftir áliti ykkar, og koma svo.....