Vmax er ágætur milli umferðarljósa, og er þeim eiginleikum gæddur að ná næsta græna ljósi á undan því sem var þegar tekið var af stað. Athugið það bara!
Því eins og konan mín segir "þú ert alltaf svo fljótur..."
Ég viðurkenni engan veginn og legg hárkollu mína undir í þeirri umræðu að til séu hjól sem liggja verr en Vmax. En það er enginn Harley-Davidson á Guggenheim listasafninu í New York. Þar finnst bara Yamaha Vmax, sem dæmi um tímalausa hönnun og elegans.
Svo getur það lekið kælivatni ef vill. Bara vill voða sjaldan.
Vmax er fyrir kúl karlmenn sem þora í bað og eru með tennur.
En Þorir enginn að svívirða Gary Fisher?