Ég er að leita að gamalli Hondu SS-50. Hún má vera mótorlaus og ekki endilega í fínu ásigkomulagi. Það vill svo skemmtilega til að ég á mótor í hana, en vantar allt annað. Sonurinn verður 15 ára í desember og það væri gaman ef hann gæti spókað sig á SS-50 næsta sumar.
Mótorinn sem við eigum er af kínversk/ítölsku apparati (pit-bike) sem eldri strákurinn keypti í Suzuki umboðinu sáluga fyrir 2 árum. Mótorinn úr því er gamli SS-50 mótorinn, nema orðinn 4 gíra (sterkari kassi) og komin rafeindakveikja, enda platínurnar eilífðarvandamál í den.
Ef þig vitið af einhverju svona útí horni einhversstaðar, endilega látið mig vita.