Welcome, Guest
Username: Password: Remember me
  • Page:
  • 1
  • 2

TOPIC: Hægri spegilarmur á Vmax.

Hægri spegilarmur á Vmax. 15 years 2 months ago #1008

Skakkur spegill lítið skraut,
með skiptilykli niður laut.
Spegilinn með smelli braut,
í gati sé ég lítinn staut.

Ekki vil ég við það dvelja,
með vinstri spegil einn að telja.
Ef hægri hefurðu að velja,
heldurðu að þú viljir selja?

Ég skal síðan hætta að staupa,
snöggt til þín ég mun þá hlaupa.
Þú munt um mætan spegil raupa,
og mana mig til þess að kaupa.

Þeytist ég í gegnum þokur,
gef þér pósitívar strokur.
Þrátt fyrir þú stundir okur,
þegi ég, hér dugar ekkert hokur.



Sannir karlmenn drekka dihydrogen monoxide
The administrator has disabled public write access.
  • Page:
  • 1
  • 2
Time to create page: 0.128 seconds