Hjólið sem fjallað er um hér er Triumph Bonneville T-140, 750cc, fimm gíra, keypti ég í lok ársins 2014 af vini mínum í Englandi, en hann hafði átt hjólið í þó nokkuð mörg ár, hann keypti hjólið í sögðu góðu ástandi og þar sem hann er alls ekki mikill "mekki" þá bara notaði hann hjólið sér til ánægju og gerði ekkert við það nema að setja á það bensín og olíu á mótor þegar það átti við.
En skoðum hjólið aðeins betur því Bonneville hjólið kom til sögunar árið 1959 með hinum svokallaða Pre-unit mótor sem var í hjólinu til ársins 1963 ef ég man rétt. Hjólið þróaðist í raun ekki svo mikið í gegnum tíðina en flestir segja að 1968-1970 hjólin séu þau fallegustu og verðið eftir því. Árið 1971 komu Triumph verksmiðjurnar með nýja grind sem byggð var þannig að olían á mótor var geymd, (já svo smá grín svo menn viti að ég SKO er að skrifa þetta, frá grind fór olían í mótor og þaðan í götuna !!): Þ.e.a.s. í stað hefðbundins olíutanks í ca. miðju grindar þá var grindin hönnuð þannig að hluti hennar er í raun olíutankur. Við þetta hækkaði hjólið í sæti þ.e. ekki heppilegt fyrir ökumenn með stutta leggi, en þykir ekki hátt í sæti í dag.
Hjólið mitt er því “oil in frame” og er fyrsta útgáfan af Bonneville með skiptinguna “vitlausu” megin þ.e.a.s. vinstra megin. Hjólið er eins og áður er fram komið 750cc og er svokallaður parallel twin sem segir okkur að stimplar mótors fara saman upp og niður. Áður en ég keypti hjólið fékk ég myndir af því og miðað við þær þá leit það bara nokkuð vel út og vinur minn sagði mér að hjólið væri “A lovely bike”. Eftir kaup á hjólinu þá ákvað ég að flytja það ekki inn fyrr en það væri orðið fullra 40 ára gamalt vegna tollaákvæða o.s.frv.
Hjólið var því geymt áfram í Englandi hjá sameiginlegum vini seljanda og mín. Sá er mikill hjólamaður og hefur gert upp mikið af hjólum af öllum gerðum og þau framleidd í hinum ýmsu löndum. Sá sem geymdi hjólið gerði mér þann “greiða” að taka ljósmyndir af hjólinu sem teknar voru svona “close up” og þá runnu nú tvær grímur á mig því “The lovely bike” leit út fyrir að vera í raun “Not such a lovely bike” (=dapurt). Svona okkar á milli þá kannski sleppi ég því að sína myndir af hjólinu áður en yfirhalning hófst því ekki má koma blettur á Breskt er best !!!!!
Þær myndir sem ég læt fylgja sögu þessari sýna hjólið þegar búið er að þrífa það og mála grind aðeins, skipta um felgur og setja ryðfría teina, búið að kaupa nýtt pústkerfi, nýjan bensíntank og sætiskúpu ofl. Myndirnar fara ef segja má svo svona fram og til baka í ferlinum, því eins og allir vita þegar gera á hjól upp í ALGJÖRLEGA orginal útliti, þá verður að raða á, taka af, smíða hitt og þetta, bæta og breyta breyta breyta svo maður nái þessu “alveg” eins og orginalið eða þannig sko !!
Eins og málin standa þá er mér sagt að mótor og gírkassi séu í góðu ástandi, en spurning með blöndunga, hjólið er með tölvustýrða kveikju og sko það verður það eina sem ekki er orginal í þessu hjóli !!!! Ef Gulli síðustjóri, peningastjóri, kaffistjóri ofl. ofl. birtir þessa grein og myndir þá læt ég ykkur fylgjast með þróun þessa mál með máli og myndum, ja eflaust aðallega myndum.
Óli bruni
Þegar stór er spurt þá er kannski erfitt að svara og þó. En að sjálfsögðu er þetta allt smekkur manna hvaða hjól er betra en hitt, síðan hvað ætlar þú að nota hjólið í ? en allavega ágætis tími að hugleiða þetta þar sem 2016 árgerðirnar eru farnar að láta sjá sig.
Valið er ekki í neinni sérstakri röð þ.e.a.s. hjólið sem fjallað er um fyrst er alls ekki það besta o.s.frv.
1. Ducati Scrambler kom ekki á óvart að það yrði valið, en við höfum fjallað áður um þetta hjól á síðum Gaflara. Hjólið höfðar til mjög margra, því þarna er ferskt og nokkuð nýtt útlit frá Ducati, þetta er svona græja sem hentar í mjög margt og ekki sakar að nútíma fatnaður og hjálmar hugsaðir fyrir hjólafólk passar mjög vel við þessa græju, retró en samt ekki, “off” road en samt ekki, smá café racer en samt ekki. Hjólið er bara flott og þá sérstaklega hjólið á teinafelgum. Kom flestum á óvart sem prufuðu það. Ég sá þetta hjól í sumar í USA og verð að segja að mér fannst það flottara á myndum heldur en sjá það “life” var nokkuð minna en ég bjóst við. Fékk aðeins að prufa það á bílastæði í umboðinu sem ég heimsótti og það lofaði bara góðu. Allavega fær flesta til að brosa.
2. Suzuki GSX-S750 hér er sambland af “street” fighter og café racer á sterum. Nakinn græja þar sem þú sérð allt sem máli skiptir, ekki allt falið með einhverjum plasthlífum. Einnig er það ekki með allt tölvustýrt, né er grind ekki það nýjast o.s.frv. En það er frábært að aka hjólinu og þú lætur þér ekki leiðast með þessari frábæru 4 strokka línuvél. Hjólið virðist vera nokkuð mikið léttara en þessi uppgefnu 470 pund. Þetta hjól er frábær prjóngræja (já ég veit alveg bannað), létt og lipurt innanbæjar sem og frábært á vegum þar sem nóg er af beygjum, hvað er hægt að biðja um meira ?
3. KTM 1290 Super Adventure þarna er græja sem segir við þig: Komum í ferðalag og tökum með slatta af farangri og okkur mun sko ekki leiðast. Nóg afl enda vélin tekin úr Super Duke hjólinu, góð fjöðrun sem er að hluta til tölvustýrð, góðar vindhlífar, nóg pláss fyrir þig og allt sem þú vilt taka með þér. Malarvegir eru ekkert mál svo lengi sem þú heldur ekki að þetta sé endúró hjól.
4. Hver man ekki nafninu Indian, nei ekki amerískur indjáni á tveimur fótum heldur á tveimur hjólum. Nafnið er allavega mjög þekkt í heimi áhugamanna um mótorhjól. Margir hafa átt nafnið og reynt að hefja framleiðslu en alltaf endað frekar illa. Nú hefur stórt fyrirtæki eignast nafnið og upphafið hefur lofað mjög góðu. Þarna er komin verðugur keppinautur Harley Davidson og þessi græja sem valin er til umfjöllunar er kölluð Indian Scout. Hjólið er með vatnskældum mótor og alls ekki af stærri gerðinni. Þarna er retró útlit, en nokkuð nútímalega útfærsla á mörgu. Þetta er bara flottur “krúser” af smærri gerðinni, en sögð hestaflatala lofar góðu þ.e.a.s. 100 hestar og uppgefið verð líka ágætt um 10þús dollarar.
5. Kawasaki Versys 1000 LT, sumir vilja meina að þetta sé góð græja til að ferðast á utan vega eða á mjög slæmum malarvegum, en nei hentar ekki í svoleiðis brölt frekar en t.d. GS1200 Bimmi. Er flottur á hefðbundnum malarvegum Kawinn og frábært almennt ferðahjól með alvöru fjögurra strokka línuvél. Sagt “höndla” virkilega vel, góð áseta, góðar vindhlífar og hægt að taka með farangur og farþega og öllum líður vel, þrátt fyrir að hjólið sé ekki hlaðið alls konar tölvustýringum.
6. Ducati Monster 821, þarna er dúkki sem búin er að vera í framleiðslu lengi með ýmsar vélar. Það er til stærri Monster dúkki þ.e.a.s. með stærri vél, t.d. 1200 hjólið, en þessi græja getur alveg eins gert þig próflausa með hraði. Uppgefin hestöfl er nokkuð yfir 100 hestar og hjólið vigtar ekki mikið. Slit á framdekki verður örugglega lítið og að horfa beint upp gerist örugglega oft. Hjólið kallar á að því sé ekið hratt og hefur alla eiginleika í það, eflaust ekki margir sem getað notað alla eiginleikana til fulls: Frábærir aksturseiginleikar og fullt af tölvustýringum sem hjálpa þér að verða betri ökumaður.
7. Einn drullumallari verður að fylgja í þessari upp talningu og sá kemur frá Yamaha og heitir YZ250FX. Þarna er græja sem er byggð á cross hjólinu YZ250F. Margir telja að WR250F hjólið væri hentugra fyrir stærri hóp og sérstakla þá sem eru kannski frekar óvanir brölti utanvega, en nei hjólið er frábærlega hannað, dreyfing afls, fjöðrun gerir hjólið að virkilega meðfærilegri græju.
8. Já það voru örugglega nokkrir farnir að spyrja hvað engin Bimmi uss ekkert að marka þessa upptalningu !! En jú BMW R1200R er bimminn sem er eitt af þessum tíu hjólum. Þarna er hjól með 1200cc vél og er vatnskælt, uppgefin hestöfl eru 125, fullt af tölustýringum til að aðstoða ökumann við flestar aðstæður. Frábær græja til að njóta akstur á góðum vegum og skilar þér brosandi heim, bara að muna að panta hjólið í svokölluðum Premium pakka því eins og allir vita þá kemur ekkert standard frá Þýskalandi þú verður að borga fyrir það.
9. Annar Yammi og nú er það götuhjól sem kallað er Yamaha FZ-07 og segja má strax að Margur er knár þó hann sé smár. Vigtar lítil 400 pund og er tveggja strokka, frábært hjól innanbæjar sem og á vegum með fullt fullt af beygjum, ótrúlega mikið tog af svona í raun lítilli vél, en eins og áður sagt hjólið er létt og virkilega meðfærilegt og ekki fælir verðið eitthvað undir 7000 dollurum.
10. Þeir sem lögðu það á sig að lesa hingað voru farnir að örvænta um ? Hvað engin Harley !! Jú það er Harley Davidson Low Rider, þetta hjól hefur ekki verið í boði í nokkurn tíma hjá Harley, en er nú boðið aftur aðallega vegna þess að (já smá grín í lokin) maður einn sem stundum er kallaður HÚNI sagði Harley mönnum að hann vildi að fara að endurnýja og fá sér nýjan Low Rider ! Nýjan græjan kemur með 103 c.inc vél og uppgefin hestöfl eru ekki til frekar en venjulega, en togið er gott um 100 ft/lbs, en ef þú ert að leita af hestöflum í standard Harley þá færðu þér annað hjól. Hjólið kemur með tvöföldum diskabremsum og eins og áður sagt fullt af togi. Þetta er krúser og þú skalt ekkert vera að flýta þér í gegnum beygjur því þá bara rekur þú eitthvað niður enda heitir hjólið Low Rider. Ath. myndin af Hallanum er aðeins neðar.
Stolið og stílfært af netinu
Óli bruni
Já SKO ég er ekki að upplýsa neitt sem þið hafið ekki þegar lesið (allavega þeir sem skoða heimasíðu vora) því nýverið lýsti formaður vor því yfir að hann væri fallinn !!! Nú veit ég að sumir eru farnir að hugsa um eitthvað neikvætt, nei ekkert svoleiðis, nei formaður vor er fallinn fyrir BRESKT ER BEST og eins og áður er fram komið þá skrifaði hann þetta sjálfur og spáði því jafnframt að fleiri félagar vorir myndu einnig falla fyrir nýju hjólunum frá Triumph.
Til að minna hann aðeins á að maður skiptir ekki um lið í enska boltanum eða tegund af mótorhjólum þó það komi eitthvað betra (BRESKT ER BEST) fram í dagsljósið, því ætla ég að skrifa um “fyrrum” besta mótorhjól heimsins Súsúkki og nú er það alvöru nakin græja frá Japan:
Suzuki GSX-S1000
Línur mótorhjóla þessa dagana eru þannig að nær allt er orðið kanntað og höfðar til nútímans eða hvað ? Kaupendahópurinn er margvíslegur og sumir blaðamenn segja að þetta séu í raun þrír hópar: Racer hópurinn sem vill vera eins og þeir bestu t.d. Rossi (verða það nær aldrei!!) og síðan krúser hópurinn sem vill fara hægt og rólega yfir jafnvel þó þeir vilji fara hratt þá bara gengur það ekki, svo er það þriðji hópurinn sem vill hjól sem hentar í nær allt sem gert er á malbiki, en hafa afl, þægindi o.s.frv. en hjólið þarf að líta út eins og mótorhjól, þ.e.a.s. þú átt að sjá hvernig græjan er byggð.
Þessi Súkka sem er reyndar ekki Bandit ! skilar mörgu af þessu sem hópur nr. 3 leitar eftir. Hjólið er flott í útliti, frábæra grind, skotheldur aflmikill 999cc motor. Þú situr nokkuð eðlilega ekki með hnén við eyrun, eða með lappirnar við framdekkið. Jafnvel þeir eldri munu “fíla” þessa græju (Formaðurinn). Mótor er í raun sá sami og í GSX-R græjunni, en hannaður með tog í huga og afl sem hentar flestum, þ.e.a.s. þeir sem aka á götum með almennri umferð. Ekki margir sem eru að mæla hvað þeir komast hratt einhvern hring eða t.d. til Keflavíkur jafnvel þó löggan sé ekki sjáanleg lengur vegna kvóta á akstur.
Það eru nokkrir framleiðendur sem framleiða svipuð hjól, t.d. frá Yamaha, Honda svo auðvitað Z1000 frá Kawasaki og ekki má gleyma Speed Triple frá Triumph. Þessi nýja Súkka er kannski ekki með allra þægilegustu ásetuna og þó svo lengi sem menn ætla ekki að fara í löng ferðalög, en allavega miklu betri áseta en á “púra” sporthjóli/racer. En það er frábær fjöðrun og virkilega góður bremsubúnaður á þessu hjóli. Það má leggja það hressilega inní beygjum og frábært tog útúr þeim.
Mælaborð er gott álestrar með þessum nútíma LCD ljósum og mælum. Sætishæð eru 31” svo ætti að henta flestum, sætið er einnig þannig að það mjókkar að tank. Stýrið liggur vel fyrir ökumanni svona hátt í líkingu við endúró stýri: Svona Renthal Fatbar útlit. Þessu hjóli er þægilegt að starta, þ.e.a.s. þú þarft ekki að taka í kúplingu til að starta, þ.e.a.s. ef hjólið er ekki í gír. Mótor er eins og áður sagt 999cc, kemur með nýrri hönnun á stimplum og knastás, S hjólið er sagt 145 hestöfl með 78 lb-ft tog. Þrátt fyrir allar þessar kröfur um minni hljóðmengun þá gefur hjólið frá sér bara nokkuð skemmtilegt purr ! Hjólið kemur með stillingu fyrir átak í afturdekk svo menn spóli sig ekki á hausinn, það eru þrjár stillingar, svo má einnig aftengja TCið (traction control).
Hjólið kemur að sjálfsögðu með sex gíra kassa, en engine afsláttar kúppling, nei þetta er hjól fyrir hjólamenn ekki tölvugúrúa (smá grin). Já höndlar vel og ekki nema von með þessa frábæru álgrind , 43 mm uppside down/inverted framdempurum sem hægt er að stilla. Vindhlífar gera ekki mikið en þó eitthvað á S hjólinu en virka vel á F hjólinu þó framrúða sé ekki stillanleg (skilst mér). Svo er bara að sjá og heyra hvað fyrsti eigandinn að þessari græju segir.
Því sem hælt er:
Sport hjól með “töffara” útlit og akstureiginleika
Fullt af afli en má samt nota í sæmilega löng ferðalög
Flott hljóð með orginal hljóðkút
Gott verð
Hvað mætti vera betra:
Ekki hægt að setja töskufestingar á F hjólið
Slær of snögglega af þegar inngjöf er slept
Kom helst til of seint fram á sjónarsviðið
Svo fylgir smá tæknibull fyrir þá sem eru allir fyrir tölur !!!
Engine: 999cc, liquid-cooled Inline Four
Bore x Stroke: 73.4 x 59.0mm (2.9 in x 2.3 in)
Compression Ratio: 12.2:1
Transmission: Six-gear with wet multi-plate clutch
Final drive: Chain
Fueling: EFI with SDTV with 44mm Mikuni throttle bodies
Exhaust: Stainless steel 4-2-1
Fuel Capacity: 4.5 gallon
Frame: Twin-spar aluminum
Front Suspension: 43mm inverted KYB fork with 4.7 inches travel; adjustable for preload, compression and rebound damping
Rear Suspension: Single KYB shock with 5.1 inches of travel, adjustable for preload and rebound
Front brakes: 310 mm floating dual discs, with four 32mm piston-equipped Brembo monobloc calipers
Rear brake: 220mm single disc, with single-piston Nissin brake caliper
Front/Rear Tires: Dunlop D214F 120/70ZR17 M/C; 190/50ZR17M/C
Rake/Trail: 25°/3.9 inch
Wheelbase: 57.5 inch
Seat Height: 31.9 inch
Curb weight: 459 pounds (F model 462 pounds)
MSRP: GSX-S1000 $9999, GSX-S1000 ABS $10,499, GSX-S1000F $10,999
Stolið og stílfært af netinu:
Óli bruni
..fengið eitthvað langtum betra frá Englandi !!!
Jæja ég hef nú þegar fangað athygli ca. 10% lesenda heimasíðu Gaflara, því hverjum dettur í hug að fullyrða eitthvað svona vitandi að Sússúkki er “sko” lang lang best. En áður en lengra er haldið í smá bulli þá segir formaður vor að vörumerkið mitt sé orðið SKO og hverjum myndi detta í hug að mótmæla formanni sínum !!!
En snúum okkur að efni dagsins sem er að fjalla aðeins um alvöru Breskt er best mótorhjól (já já það koma örugglega greinar um eitthvað frá Japan), nú er það í raun fyrsta Street fighter græjan beint frá verksmiðju: Triumph Street Triple 1050cc og var fyrst kynnt til sögunar árið 1992 og náði strax miklum vinsældum og það muna allir ekki rétt eftir þessum vígalegu tveimur framljósum, ásamt frábæru afli, sem og að vera mikið örðruvísi með þriggja strokka mótor og góðum aksturseiginleikum.
Síðan þá hefur margt breyst t.d. vegna tilkomu hjóla eins og KTM 1290 Super duke og BMW S1000Rs og því er hugsanlega Speed Triple græjan ekki lengur aðal töffarinn á götunni og þó því með 2016 útgáfunni er S-T (hér eftir skammstöfun á þessu frábæra hjóli) hefur Triumph sótt sig í veðrið og ætlar aftur að vera aðal töffari götunnar, allavega í útliti og með betri akstureiginleikum.
Sumir segja að útlitið á hjólinu í dag sé svona meira Daniel Craig (Bond) heldur en Jason Stratham í ermalausum bol !! Hverju hefur verið breytt ? Hjólið virðist vera lengra, lægra og svona “ruddalegra” en samt svona fágað. Það eru sömu tvö flottu framljósin og nú í LED. Allt mæladótið og litla vindhlífin hefur verið fært neðar. Bensíntankur fær nýtt útlit og hæsti hluti hans er bensínlokið (já Triumph hefur fylgst með hvað línur eiga að vera í café racer/brat/street fighter sem menn smíða heima hjá sér). Speglar eru á enda stýris, vatnskassi er allur minni, sætið er mjórra við tank og allt þetta gerir hjólið svona “fágaðra”.
Mótor er sá sami og árið á undan þ.e.a.s. þriggja strokka og 1050cc, en nær öllu innihaldi hefur verið breytt Triumph segir að 104 hlutum hafi verið breytt !! Komið er nýtt hedd, sem og stimplar, ný hannað sprengihólf og þetta ásamt ýmsu öðru gefur miklu betra tog, er það ekki sem við viljum flest, hver hefur að gera við 200 hesta græju á þessu landi með okkar frábæru vegi !! og 90km hámarkshraða. Þrátt fyrir að togið hafi verið aukið verulega og þá aðallega á milli 4. og 7. þús snúningum þá hefur aflið ekkert minnkað. Eins og á flestum alvöru hjólum í dag er allt tölvustýrt og inngjöf er rafmagnsstýrð.
Hjólið kemur með spyrnustýringu (traction control), sem og “slipper clutch” og því ætti engin að spóla sig á hausinn eða renna til við niðurskiptingu gíra með hraði (ala Sigurjón), jú jú það er enn hægt að prjóna eins og maður vill, en vill benda á að það er alveg stranglega bannað !! Þeir segja að bensíneyðsla sé minni, en hverjum í veröldinni er ekki sama um það á svona græju, hver færi að spyrja sölumann: Hvað eyðir græjan á 100 km= öllu sem sett er á það !! Hjólið kemur með ABS bremsum og hægt er að stilla þær eitthvað ? Off and ON??
Hægt er að fá S-T í S útgáfu og þá kemur hjólið með alvöru fjöðrun frá Öhlins, sem hægt er að stilla á alla vegu þannig að þú ættir að verða jafn góður ökumaður og a.m.k. Valentino Rossi !! Svo fá menn alls konar Carbon hluti, ekki veitir af að létta hjólið aðeins ekki rétt ?!! En hér hafa Triumph menn hitt vel í mark með þessum nýja þriggja strokka Speed Triple, en dæmi hver fyrir sig. Hægt er að lesa miklu meira um hjólið á netinu, þ.e.a.s. hvað alvöru atvinnu ökumenn eru lengi í 100km hraða, hvað þeir fara ¼ míluna á, já allt þetta tæknital sem fæstir muna eftir eftir að hafa lesið það. Það er í raun alltaf útlitið sem selur og svona alveg í trúnaði okkar á milli þá er hér smá samlíking: Hver vill eiga ljóta og ja hægfara kerlingu !!!
p.s. lesa konur nokkuð þessar greinar ???!!!!
Stolið og stílfært af netinu
Óli bruni
tekið af mbl.is
Ítalski mótorhjólasmiðurinn Ducati sló öll fyrri met er hann afhenti fimmtíuþúsundasta hjólið á einu ári í fyrsta sinn í sögu sinni.
Það var hinn þann 10. nóvember síðastliðinn að Ducati afhenti 50 þúsundasta hjólið á árinu. Er þar um að ræða 23% aukningu miðað við sama tímabil í fyrra, en þá voru afhent hjól 40.650.
Fjöldi afhendinga á eftir að aukast talsvert þar sem enn voru eftir 50 dagar af árinu er metáfanginn náðist.
Á mótorhjólasýningunni EICMA sem nú stendur yfir í Míklanó á Ítalíu frumsýnir Ducati sjö ný módel sem koma á götuna 2016. Í fylkingarbrjósti er XDiavel ferðahjólinu sem er eiginlega ný útgáfa af Diavel-hjólinu. Einnig sýnir Ducati nýja útgáfu af Panigale 959, tvær útgáfur af Multistrada 1200, tvær nýjar af Scrambler og þrjár af Hypermotard.
Á myndskeiðinu hér á eftir má sjá XDiavel-hjólið.
tekið af mbl.is
Nýtt Moto Guzzi V9 hefur þegar verið frumsýnt en margra nýrra ítalskra hjóla er að vænta á EICMA.
Í dag opnar EICMA-mótorhjólasýningin í Mílanó sali sína fyrir forvitnum sýningargestum en hún er eina stóra mótorhjólasýning ársins ef frá er talin Tokyo Motor Show þar sem Intermot-sýningin í Þýskalandi er aðeins haldin annað hvert ár.
Margt nýrra gerða verður að sjá og sumar þeirra þegar komnar fram í dagsljósið með myndum frá framleiðendum. Þar sem sýningin var opnuð í dag er ekki mögulegt að sýna myndir frá henni í þessu blaði en við munum gera því betri skil í næsta þriðjudagsblaði. Þangað til skulum við skyggnast aðeins inn fyrir tjöldin og sjá það helsta frá stærstu framleiðendunum.
Ítölsku framleiðendurnir verða fyrirferðarmiklir eins og oft áður á EICMA enda sýningin á ítalskri grund. Bimota er að vakna úr dvala með tvær nýjar gerðir, Tesi 3D RaceCafe-hjólið og Impeto; nakið götuhjól sem notast við sömu vél og Ducati Diavel en með forþjöppu fer það hjól yfir 190 hestöfl. Ducati er með níu frumsýningar á EICMA en þau sem munu vekja mesta athygli eru nýtt Multistrada 1200 með meiri torfærueiginleika og að öllum líkindum minni útgáfa Scrambler-hjólsins. Einnig er að vænta nýs Diavel-hjóls með reimdrifi en það er kallað X og verður enn meir í stíl við Victory og Harley-Davidson en áður. MV Agusta er með tvær nýjar uppfærslur og Aprilia mun allavega sýna 230 hestafla ofurhjól þótt lítið hafi frést meira frá þeim framleiðanda. Loks er Moto Guzzi að koma með fjögur ný hjól en það eina sem sést hefur fyrir sýninguna er V9, sem er nokkurs konar retro-hjól í stíl við Triumph Bonneville.
Af öðrum Evrópulöndum er mest að frétta frá Þýskalandi en BMW verður með fimm ný hjól á sýningunni auk tilraunarafhjóls sem byggist á RR og kallast einfaldlega eRR. Stærstu fréttirnar eru eflaust nýtt Scrambler-hjól sem þegar hefur komið í tilraunaútfærslu og nýtt hjól af smærri gerðinni sem er G310R hjólið. Auk þess koma nýtt G650 Sport, G650 GT og nýtt F-hjól. KTM mun frumsýna nýtt 690 Duke með nýjum mótor sem og nýtt 1290 Super Duke GT-ferðahjól. Auk þess er von á sérútgáfu af Super Duke R sem nokkurs konar tilraunaverkefni. Husqvarna mun sýna framleiðsluútgáfur 701-hjólanna en líklegt er að 401-hjólin fái að bíða þar til á næsta ári þótt ekkert sé hægt að segja um það ennþá. Triumph mun frumsýna vatnskældar útgáfur Bonneville og Thruxton sem og ný Speed Triple S og R, en einnig er von á uppfærslu af Tiger Explorer 1200.
Það er aðeins erfiðara að lesa í japönsku framleiðendurna þar sem ekki hefur verið mikið um frumsýningar fyrir sýninguna sjálfa. Honda mun að öllum líkindum sýna tvö ný 250 rsm hjól, CRF250 Rally og CBR250 RR, en ekki er talið líklegt að við fáum að sjá nýtt 1000-hjól strax. Kawasaki og Suzuki munu örugglega bæði hafa ný tveggja strokka forþjöppuhjól til sýnis en Suzuki frumsýndi sína vél á sýningunni í Tókýó nýlega. Suzuki og Kawasaki hafa með sér samstarf um marga hluti og því má vænta að bæði Suzuki Recursion og Kawasaki S2 verði frumsýnd á EICMA. Spurningin er hvort Suzuki muni einnig sýna nýjar útgáfur GSX-R-hjólanna en það á eftir að koma í ljós. Yamaha á 60 ára afmæli á þessu ári og því er líklegt að við munum sjá eitthvað nýtt frá þeim, þótt aðeins hafi verið „strítt“ með myndum af nýju MT 150 rsm hjóli en vonandi verður nýtt R6-hjól einnig frumsýnt.
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
BMW frumsýndi á dögunum nýtt G310R-hjól sem er minnsta hjólið sem BMW framleiðir og er unnið í samstarfi við indverska framleiðandann TVS.
Suzuki frumsýndi forþjöppuvélina í tilraunahjóli á Tokyo Motor Show nýlega en framleiðsluútgáfu er að vænta á EICMA í ár.
Að vera ungur og hress með í raun tvennt á heilanum: mótorhjól og stelpur, er bara eðlilegt og jafnvel ég man eftir þessum dögum, en nú hugsa ég bara um mótorhjól og næstu ferð á snyrtinguna !!! En saga þessi fjallar kannski ekki mikið um mótorhjól og þó !!
Jæja áður en lengra er haldið þá vitið þið það (ja þeir sem nenna lesa mín skrif) að allar þessar sögur eru sannar og svo sannar að góður sögumaður á suður- eyjunni myndi (kenndur við vissan góðan morgunmat) halda að hann hefði sagt þær, ekki til betri meðmæli með söguhæfileikum suðureyjamannsins.
Jæja saga þessi gerist fyrir mörgum mörgum árum og þá var maður vitlaus og gr$%/ur, nú er maður bara vitlaus. Ég var í “partý” hjá nokkrum góðum vinum og þangað hafði ég komið á Súkku 600 með einhverjar veigar með mér í plastpoka. Stuðið var þegar byrjað þegar ég mætti (ja sko sumir þurfa að vinna gamli sagði góður maður) og menn voru búnir að velja sér eitthvað af hinu kyninu.
En ég var bara með hugann við að ná félögum mínum sko í drykkjunni !! Hellti í mig nokkrum bjórum á augabragði og skolaði þeim niður með nokkrum skotum af einhverju sterkara. Það tók ekki langan tíma að ná “réttu” stuði og þá fór maður að veita því athygli að sko allar stelpurnar þarna voru bara voðalega sætar og urðu sætari og sætari með hverjum bjórnum og skoti sem drukkinn var.
Fljótlega (að mig minnir) þá var ég orðin yfir mig ástfanginn af einni þarna, meira segja þekkti hana aðeins, hún var eitthvað tengd tengdafjölskyldu pabba. Hún var sko jafnhá og ég með sítt svart hár og vaxinn eins og gyðja. Hún horfði aðdáunar- augum á mig tala um mótorhjól, ja sko ég vissi lítið um annað þá (og ekki meira í dag). Ég var bara orðin ástfanginn og litli áfengispúkinn á öxlinni á mér sagði mér að ég væri sko “maður lifandi” búin að hitta flottustu dömuna í heiminum.
Jæja eitt leiddi af öðru og við enduðum saman uppí rúmi einhversstaðar í þessu húsi og jafnvel í gegnum alla móðuna þá man ég að þessar svokölluðu ástarlotur voru “daprar” og örugglega engum til gagns nema þá litla heilanum !!
Næsti morgun og ég vakna við einhverjar strokur og ég sný mér að drauma- drottningu minni og sagan um sléttuúlfinn sem festist í gildrunni kemur uppí hugann. Jesús, guð minn og allir hinir hvað gerðist eiginlega, fyrir framan mig er andlit stelpu sem er með stórar kinnar og að auki með slatta af unglingabólum !!
Shit plataði ég aumingja stelpuna, ég staula einhverju upp um ánægjulegt kvöld !!
Fer að tala um eitthvað til að vita aldur hennar og úff úff hún er nú 19 ára og meira segja lítillega tengd mér.
Nei nei það gerðist ekkert meira þarna í litla sófanum (sem var eins og hjónarúm í gær), því hún sagði að við værum að fara í sama afmælið og ekki langt í að það færi að byrja !! Ég treð mér í fötin og hún líka, ég sé að hún er ja svona “frekar” þykk og ekki há í loftinu, en allavega hún er með svart hár, ja sko litað sé ég. Hún heldur í hönd mína þegar hún leiðir mig brosandi og stollt í gegnum húsið fyrir framan “fyrrverandi” glottandi vini mína, sem lyfta þumalfingri hver af öðrum, megi andskotinn eiga þá hugsa ég.
Nýja “kærasta” mín segir jæja ég fæ far hjá þér í afmælið, það er nóg af auka hjálmum hérna ! Ég reyni að segja að ég sé slappur og hún sé klædd í stutt pils. En allavega þetta endar með því að ég hjálpa henni á Súkkuna og ek af stað í afmælið og þessir svokölluðu vinir standa allir fyrir utan húsið með enn stærra bros á vörum sínum og kalla góða skemmtun þið tvö !!!
Man ekki mikið eftir afmælinu en leiðin þangað sem tók ekki nema um 10 mínútur var hrikalega löng og nýja “kærastan” kreisti mig alla leið þangað ja sko til öryggis að detta ekki af og svo leiddi hún mig inn með enn stærra bros og sleppti ekki hendinni af mér allt afmælið !!
Ég sá hana ekki meir fyrr en mörgum árum seinna og þá enn skammaðist ég mín fyrir framkomu mína gagnvart henni. EN SKO ÉG SELDI SÚKKUNA NOKKRUM DÖGUM EFTIR AFMÆLIÐ OG FÉKK MÉR HONDU, því sko ég gat aldrei horft á súkku öðruvísi en að muna eftir þessu kvöldi og dömunni “fallegu”, ja sko helvítið hann Bakkus gerði hana gullfallega.
Sönn saga !!
Óli bruni
SKO
(eins og allir vita þá er Breskt best)
Nú eftir nokkra bið og þrátt fyrir miklar vinsældir þá hafa Triumph verksmiðjurnar ákveðið að kynna til sögunar nýjan Triumph Bonnieville og þessar nýju græjur eru bara með því flottara sem við höfum séð og örugglega ekki langt í að Súkku eigandi einn verður búin að kaupa sér einn nýjan Bonnie ekki satt !!! En áður en lengra er haldið þá vil ég halda því til haga “sko” að það eru aðeins tvær söguhetjur í þessum skrifum mínum annar á bláa súkku hinn á bláleitan FJR. Kæru félagar ef einhverjum langar til að verða söguhetja þá eru ekki mörg skilyrði: Bara skrifa eitthvað inná síðu vora !! (já já ég veit fésið er það sem koma skal segja sumir !!)
En snúum okkur að alvöru málsins Breskt er best: Það hafa verið í gangi í nokkurn tíma sögur um nýjan Bonnie og menn segjast hafa séð hjólið á ferðinni þ.e.a.s. prufuhjól, en nær engar myndir sést, allavega ekki neitt sem var að marka. Reyndar kom “sena” frá Triumph þar sem David Beckham sást á áður óséðum Thruxton Bonnie. Svona til gamans þá verð ég að geta þess að Beckham er uppáhalds fótboltamaður eiganda bláu súkkunnar !!
Sumir sem segjast vita allt sögðu að nýja Bonnie hjólið yrði 1100cc eða jafnvel 1200cc og þá vatnskælt, já vatnskælt því þessar mengunarkröfur gera það að verkum að þegar vélar eru komnar um og yfir 1000cc þá er erfiðara að ná öllum kröfum (frá mengunarkerlingum) um hljóð og loftmengun Euro 4, já já ég veit Hardley Moving Davidson nær þessu enn, en höldum okkur við mótorhjól (uss komin útá hálan ís, nei þetta er allt á léttu nótunum).
En staðreyndin er sú að það verða tvær vélar í boði 900cc fyrir Street Twin ódýrasta hjólið og síðan 1200cc í Bonnie og Thruxton, kveikjurhringur er 270 gráður, kemur með sex gíra kassa, kveikjan tölvustýrð, bein innspýting, víruð inngjöf (engin barki), spólvörn og ABS ofl. Að sjálfsögðu er þetta misjafnt eftir því hvaða hjól þ.e.a.s. er keypt.
Triumph hönnuðir hafa lagt mikið á sig að fela þá staðreynd að hjólið er vatnskælt, vatnskassinn lítur út eins og hefðbundin olíukælir, t.d. er áfyllingar- lok er “sko” svona falið ef segja má svo. Einnig hefur farið nokkur vinna í það að láta beinu innspýtinguna líta út eins og hefðbundnir blöndungar og það hefur heppnast betur en á eldri hjólunum.
Fyrir mig allavega er Thruxton og Thruxton R hjólið alveg meiriháttar og get varla beðið eftir leyfi frá “húsbóndanum” að fá að kaupa eitt, en koma tímar og koma ráð (ja “sko” konan ræður að sjálfsögðu). Thruxton hjólið kemur eins og áður sagt í tveimur útgáfum, bæði hjólin eru með 1200cc vatnskældu vélinni, en í þessu hjóli á þessi vél að vera aflmeiri en í hinum og áður en lengra er haldið þá man ég vel þegar ég tók í einn Thruxton fyrir nokkrum árum þá fannst mér hjólið virkilega skemmtilegt en miðað við Café Racer útlit þá vantaði vel upp á aflið, en nú ætti það að vera úr sögunni. Nýjan græjan er sögð toga 112NM (82.6 lb-ft) á 4950 snúningum. Thruxton hjólið kemur með léttari sveifarás heldur en hin 1200cc hjólin og er því svona sneggra upp, já eins og café racer ætti að vera (kona góð hvenær má ég panta !!!), einnig hærri þjappa sem og opnara loftbox. R hjólið kemur svo líka með betri fjöðrun frá Öhlins og betri hjólbörðum ofl.
Það er hægt að telja upp fullt af hlutum í viðbót sem koma í þessum hjólum og þá aðallega Thruxton R hjólinu, já ekki má gleyma tvöföldum diskabremsum að framan sem og “inverted”/upside down framfjöðrun, en þar sem ég veit að þið öll farið beint á netið til að lesa meira um þessi frábæru hjól þá sleppi ég því. Hægt er að kaupa alls kona aukahluti á öll þessi hjól til að persónugera sína græju ef segja má svo “sko”.
Blaðamenn segja að nýja T120 Bonnie hjólið sé best heppnaða eftirlíking 1959 Bonnieville roadster og ekki ljúga blaðamenn er það nokkuð !! Alls konar litasamsetningar eru í boði, allt svart eða “retró” o.s.frv., og eins og ááður sagt alls konar aukahlutir, jafnvel hljóðkútar frá Vance & Hines. Bendi á flottar greinar um þessi hjól á netinu t.d. cycleworld.com og bikeexif.com. Nú er bara að sjá hver verður fyrstur að kaupa þessa nýju græju.
Óli bruni
tekið af mbl.is
Yamahabíllinn er glæsilegur útlits enda hannaður af Gordon Murray sem hannaði meðal annars McLaren F1. Hönnun bílsins kallast iStream. mbl.is/afp
Yamaha er eitt af þessum fyrirtækjum sem smíðar nánast allt, hljóðfæri, mótorhjól og meira að segja geislaspilara.
Yamaha hefur hins vegar aldrei smíðað bíl áður þótt vélar frá þeim hafi knúið bíla eins og Toyota 2000GT og Lexus LFA. Á Tokyo Motor Show í ár bar þó eitthvað alveg nýtt fyrir augu, en það var bíll frá Yamaha og það alvöru sportbíll þótt í tilraunaútgáfu sé.
Eins og búast mátti við frá mótorhjólaframleiðanda er bíllinn léttur og hannaður til að vera skemmtilegur í akstri. Útlitið minnir á ofurbíl og framendinn er ekki ólíkur þeim á Toyota FT-1 tilraunabílnum, en Toyota og Yamaha hafa alltaf haft með sér náið samstarf. Grindin er byggð á framleiðslukerfi Gordon Murray sem hannaði meðal annars McLaren F1 og kallast hönnunin iStream. Koltrefjagrindin er hönnuð þannig að hún þarf færri íhluti sem eru léttari án þess að það komi niður á styrk grindarinnar. Þess vegna er bíllinn aðeins 770 kíló að sögn Yamaha þrátt fyrir að bíllinn sé svipaður að stærð og Mazda MX-5 sem er 350 kílóum þyngri. Framleiðsluferlið líkist meira samsetningu á mótorhjóli þar sem aukahlutunum er raðað utan á grindina, í stað þess að undirvagn og yfirbygging komi saman í miðju ferlinu líkt og gert er í bílaframleiðslu. Engar vélarupplýsingar hafa verið gefnar út ennþá en það er deild sem Yamaha verður ekki í vandræðum með, verði ákveðið að koma með þennan bíl í framleiðslu.
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
tekið af mbl.is
Tokyo Motor Show er sýning sem snýst um að sýna nýjustu tækni í heimi farartækja og þess vegna snýst hún ekki einungis um bíla, heldur líka mótorhjól og stundum jafnvel vélmenni lika.
Yamaha sýndi okkur inní alla þessa heima á sýningunni því að Yamaha frumsýndi ekki aðeins sinn fyrsta bíl heldur einnig þríhjóla sportmótorhjól og vélmenni sem getur keyrt alvöru keppnishjól.
Motobot er sjálfvirkt vélmenni sem getur tekið ákvarðanir og er hannaður til að ráða við akstur mótorhjóls, sem er ekkert smáverkefni fyrir tæknimenn Yamaha. Motobot er ekkert fyrir að keyra lítil æfingarhjól og lætur ekkert minna duga en aðeins breytt Yamaha R1M.
Þríhjóla MWT-9 mótorhjólið er með tvö hjól að framan, en saman veita þau meira grip við hvers konar aðstæður og koma í jafnvel í veg fyrir fall. mbl.is/afp
Þríhjóla MT-09 var einnig frumsýnt í Tokyo en það kallast reyndar MWT-9 en það stendur fyrir Multi-Wheel. Með því að hafa tvö framhjól í fullri stærð á það að hafa enn meira grip í beygjum en venjulegt mótorhjól. Hjólið er með þriggja strokka 850 rsm vél og útlitslega virðist hjólið jafnvel vera tilbúið til framleiðslu. Fjöðrunin er mjög slaglöng til að geta leyft framhjólunum að halla mikið enda var þróunarheiti þess „Cornering Master“ eða meistari beygjunnar. This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.