tekið af mbl.is
Einstök fornbílasýning í London
Þeir sem leggja leið sína til Lundúna um næstkomandi mánaðarmót og hafa tíma aukreitis frá öðrum erindum gætu upplifað einstaka fornbílasýningu.
Hér er um að ræða sýninguna „Classic & Sports Car“ sem samnefnt tímarit stendur fyrir dagana 30. október til fyrsta nóvember, að báðum dögum meðtöldum, í Alexandra Palace.
Þar mun hver gæðavagninn af öðrum úr tímans rás verða til sýnis, en í öndvegi verða bílar frá breska bílsmiðnum Aston Martin.
Þar á meðal verður elsti Aston Martin sem enn er ökufær, en hann er af gerðinni „A3“. Hann er frá árinu 1921 og sá eini af fjórum frumgerðum stofnendanna Robert Bamford og Lionel Martin sem enn er til.
Hann verður í góðum félagsskap systurmódelanna DB MkIII, DB5, V8, DB7, Vanquish og DB9 GT. Allir þessir bílar voru smíðaðir í höndunum á sínum tíma.
Á sýningunni verða á fjórða hundrað forn- og klassískra bíla úr söfnum heimsfrægra bílasafnara og fornbílasala. Verða þar saman komnar helstu goðsagnir bílasögunnar síðustu 60 árin.