tekið af mbl.is
Áhugamenn um mótorhjól hlýtur að líða illa við að horfa á myndskeiðið með þessari frétt. Það er frá keppni í „ómögulega brekkuklifrinu“ sem fram fer árlega í Belgíu.
Brekkan í Andler/Schönberg er afar brött og minnsta kosti um 60 gráður efst en þar er auk þess í henni klettabelti sem gerir hana afar illvíga. Nánast er útilokað að komast upp.
Herskari keppenda mætir ár hvert til leiks á sérútbúnum mótorhjólum. Nær öll þeirra hljóta mjög harkalega útreið er þau steypast niður brekkuna eftir að hafa kastað knöpunum af sér eins og ótemjur væru.
Í myndskeiðinu komast tveir keppendur ansi langt og eru í aðeins seilingarfjarlægð frá markinu. Báðir höfðu það lengi vald á fákum sínum að hjólin flugu að og yfir marklínuna.
Óhætt er að segja að ökumennirnir séu kaldrifjaðir að leggja í keppni sem þessa. Hljóta þeir margir harkalega niðurferð eftir þeir fljúga af mótorhjólunum og hendast niðurbrekkuna. Og þótt ótrúlegt megi virðast slasaðist enginn alvarlega í þessari keppni.
https://www.youtube.com/watch?v=uRGn9AY0ysA