Margir telja að upphaf bútasaums megi rekja til Ameríku en fæstir vita að upphafið má rekja allt aftur til Egyptalands hins forna. Bútasaumurinn eins og við þekkjum hann í dag er einkum í gerð vegg- og rúmteppa úr mislitum bútum ýmist handsaumuðum og/eða vélsaumuðum. Vegna gífurlegs áhuga á bútasaum um víða veröld hafa sprottið upp búta-saumsklúbbar, þar sem unnið er með allt mögulegt varðandi bútasaum. Má þar t.d. nefna saumaskap á „vina-blokkum“ sem eru síðan settar saman í teppi, spjallklúbbar fyrir þá sem eru „langt leiddir“ í bútasaum o.fl.
Ýmis gagnleg tæki og áhöld til bútasaums eru fáanleg, s.s. stikur og skapalón (Templates), saumavélar af ýmsum gerðum, vélar til að stinga teppi og margt fleira; allt til að létta undir handverksfólkinu. Ekki eru síðri vefsíðurnar um efni, liti og litun og svo eru til ýmsar vefsíður um kennslu í bútasaum bæði fyrir börn og fullorðna. Talsvert er um sýningar á bútasaum og ýmsu tengt honum bæði hér á Íslandi þó þær séu nú umfangsmeiri í Ameríkunni.
Ýmsar bútasaumsverslanir og framleiðendur efna veita þjónustu í gegnum Netið. Flestar verslanirnar eru með sjálfvirka pöntunarþjónustu á öllu er tengist bútasaum. Mjög auðvelt er að nota þessa þjónustu. Þær erlendu miðast aðallega við Bandaríkin jafnvel þó að um alþjóðlega póstverslun sé að ræða. Ánægjulegt hversu gott úrvalið er og handhægt að nýta sér Netið!
Þetta er fróðleikur af hinni íslenzku bútasaumssíðu sem Sólveig Friðriksdóttir heldur úti.
Meira seinna.