Læðan er ekki alveg tilbúin.
Milligírinn kemur frá Ljónsstöðum og verður tilbúinn milli jóla og nýárs. Þangað til er þetta eini 49 tommu afturhjóladrifni bíllinn á landinu...og þó víðar væri leitað.
Spilbitinn/kastaragrindin er í smíðum (litlu ljósin á framhornunum eru niðurfærð ökuljós þar sem hin standa of hátt), sem og sílsabrettin. Ýmislegt er eftir, td. undirakstursvörnin eins og á hinum vörubílunum...
Undir kvikindinu er four-link loftpúðafjöðrun að aftan, gormar að framan. Framhásingin er færð fram um 6 sentimetra, en afturhásingin stendur á sínum gamla stað. Hækkun er 15 sentimetrar plús dekkin, sem eru Irok 21x49x17. Felgurnar eru sérsmíðaðar hjá Smára í Skerpingu og eru með beadlock innaní báðum megin.
500 hestafla Cummins er undir húddinu og torkið 1250 Nm sem nást strax á 1600 RPM, svo nægt afl er til að snúa dekkjunum. Hlutföllin fóru úr rúmum 3:1 í 4,88:1
Er ekki alveg búinn að reikna hvernig ég hengi hjólhýsið aftaní.
Bara gaman að þessu!