Þann fyrsta ágúst hittust 11 Gaflarar í sumarblíðu uppá Stöð kl 20:00.
Var það fríður flokkur sem þeysti úr hlaði og var stefnan sett í austurveg. Ekið var upp Geitháls, Þrengsli og framhjá Litla Hrauni. Þar sem enginn átti erindi þangað (hvorki af vilja eða nauð) ókum við áfram til Selfoss og þaðan að Þrastarlundi. Vertinn í Þrastarlundi (ef hann væri danskur og héti Per væri hann PerVert...
) skenkti okkur heita drykki. Að loknu kaffi og hefðbundnum montsögum settust menn á bak og settu stefnuna á Þingvelli. Stutt var stoppað á Þingvöllum og síðan farið til höfuðborgarinnar, Hafnarfjarðar, með akstri í gegnum úthverfið Reykjavík. Ekki var laust við að menn væru eilítið farnir að kólna niður í lokin og hef ég grun um að einhverjir hafi lagst í lítt karlmannlegt freyðibað er heim var komið.
Kv,
Hjörleifur aðalritari.