Ég gleymdi áðan að svara þráðarhöfundi varðandi meðmæli með skoðunarstöð. Ég mæli eindregið með að Hafnfirðingar fari með bifhjól sín til skoðunar í Hafnarfirði hjá Aðalskoðun.
Ég mæli með eftirfarandi aðferð:
Þrífið hjólið vel og vandlega og gangið úr skugga um að allt sé í lagi.
Sprautubónið þrjár umferðir og fægið á milli umferða og á eftir með silfurfægiklút.
Verið vel fyrir kallaðir, útsofnir, með vel burstaðar tennur og daufan karlmannlegan rakspíra eins og t.d. Harley-Davidson. (Rolf Johansen & co)
Verið í nýþvegnum galla og í nýburstuðum stígvélum.
Akið gætilega að skoðunarstöð, gefið stefnumerki inná planið og leggið hjólinu.
Þegar skoðunargjaldið hefur verið greitt, með Hafnarfjarðarafslætti, þá bíðið rólegir eftir að röðin komi að ykkur.
Ræsið án þess að gefa í og akið rólega beint inn um dyr og drepið á hjólinu, svo þið ærið ekki skoðunarmanninn, né kæfið í eitruðum útblæstri.
Takið strax upp létt hjal við hann og hælið aðstöðunni og hafið gjarnan orð á því að það sé nú gott að þurfa ekki að fara langar leiðir til að fá jafn góða þjónustu.
Þetta virkar.