Ég er með nýjar upplýsingar um verð á Danska súperhjólinu... fob. verð er Eur 32.000 og það myndi kosta rúmar 10 milljónir hér á landi.
Ég hafði samband við Lauge og hann upplýsti mig um það að hann kaupir mótórblokkina frá ULTIMA, sem er amerískt fyrirtæki. Þetta er loftkældur mótór og það munu vera 8 framleiðendur af svipuðum mótórum og taka mið af Harley mótórnum. (líklega á hann við um hinn legendaríska Evolution mótór sem Harley-Davidson framleiddi)
Þegar ég nefndi að danska hjólið væri líkt Harley, þá er það sláandi líkt HD Softail Rocker C.
Ég mundi alveg örugglega tíma að setja einar 4 - 5 Hondur uppí skipti á svona hjóli
jafnvel fleiri