Ég kíkti við í Mekka HD manna á Grensásveginum seinnipartinn í dag.
HD verkstæðið er á fullum dampi (veitir nú ekki hugsa eflaust sumir, jæja skítt með það...)
Þeir lofa ávallt heitu á könnunni milli kl. 16 og 18. Skildi það hins vegar þannig og fannst leitt að umboðsmál HD hér á landi séu í uppnámi, deilur, dómsmál og gjaldþrot að væmast um en menn bjartsýnir að allt skýrist þetta með hækkandi sól.
Ég var hins vegar svo hrifinn af hjólinu sem minnst var á hér fyrr í spjallinu að ég hafði samband við seljandann og hvað haldiði????? Jú hjólið var því miður selt, ekki stanzaði það lengi við!!! Árans og ég sem hefði skoðað það í alvöru að hafa það til sýnis í stofunni hjá mér.....
Nú er halda sönsum og bíða rólegur eftir öðru tækifæri, máski gjörist slíkt að annar góður og gamall verður falur og það jafnvel á þessari öld.
mbk
Ingó