Nú er ég að fara að kaupa mér dekk undir hjólið mitt.
Þá er spurningin hvaða dekk ég á að kaupa. Standard dekkin undir Kawasaki Versys er 160/60-17 að aftan og 120/70-17 að framan.
Hef verið að spá í Michelin pilot road 2. Er með svoleiðis að framan og er það frekar nýtt.
Einnig hef ég verið að spá í Michelin Anakee2 en þau eru í stærðinni 150/70-17 og segja menn að ég geti notað þau.
Einnig hef ég séð að continental trail attack hafi komið mjög vel út en þau eru einnig 150/70-17. Getur einhver sagt mér hvar þau fást.
Gott væri að fá einhverjar ráðleggingar hjá ykkur en ekki lofa ég að fara eftir þeim.
Með kveðju
Valur