Ég er kominn með 1980 árgerðina af Hondu SS-50 í bílskúrinn. Hún er gömul og þreytt og í hana vantar ýmsa hluti. Brettin eru með, en orðin ryðguð, sætið vantar, einnig afturstefnuljós og svo mætti ýmislegt telja upp sem ekki er með.
Er ekki einhvers staðar gömul Honda SS-50 í bílskúr sem hægt er að nota í varahluti?
Skoða allt, sama hversu ómerkilegt það kann að virðast, það getur verið fjársjóður fyrir okkur nördana.
Kv,
Hjörleifur.