Páll Sigurðsson varð 70 ára 29. ágúst s.l. og fékk hann því afhent skjal því til staðfestingar.
kv.
Stjórnin
Þann 8. október s.l. átti Reynir 70 ára afmæli.
Í tilefni af því heimsótti formaðurinn Reyni til Spánar og afhenti honum skjal til staðfestingar að hann væri orðinn Heiðursgaflari.
kv.
Stjórnin
Seinni dagsferðin er næsta laugardag.
Mæting kl. 09:00 á Strandgötunni.
Veður ræður hvert verður farið.
kv.
Stjórnin
Nú er feriðin í Mótorhjólaskóginn á morgun, laugardaginn 21.5.2022.
Allir félagar velkomnir með. Þetta er síðasta árið sem áburði verður dreift.
Nánar hjá formanni í síma 692-2323.
Smurdagurinn 2022 verður haldinn næsta laugardag, 7. maí, kl. 11:00 á verkstæðinu hjá Jóa Þorfinns á Lónsbraut.
Grill eins og verið hefur undanfarin ár í hádeginu.
Stefnt á hjólatúr á eftir.
Fyrsti maí akstur Snigla er framundan og leggur af stað frá Laugavegi kl. 12:30.
Gaflarar ætla að fara frá Strandgötunni kl. 11:45.
kveðja
Stjórnin
Félagi okkar Kristján E. Ágústsson er 70 ára í dag, 22.1.2022, og var hann heiðraður í tilefni dagsins.
Gaflarar óska honum til hamingju með daginn og óska honum góðs gengis í framtíðinni.
kv.
Stjórnin
Ágætu Gaflarar og aðrir hjólamenn.
Stjórn Gaflara óskar ykkur gleðilegs árs og þakkar fyrir árið sem er á enda komið.
Vonandi eigum við ánægjulegt hjólaár framundan.
Kveðja
Stjórn GAFLARA
Ágætu félagar og aðrir hjólamenn
Við óskum ykkur öllum og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla og hafið það sem allra best um hátíðarnar.
Jólakveðja
Stjórn Gaflara
Ágætu félagar, næsti fundur okkar verður á nýja árinu.
Nokkrar myndir úr hringferðinni komnar á síðuna undir myndasafn.
Jólakveðja.
Stjórnin