Aðalfundaruppgjör
Aðalfundur gaflara var haldinn á Fjörukránni 27 febrúar. Það voru rúmlega 40 Gaflarar sem söfnuðust saman snjóþungan laugardag til þess að fara yfir hjólaplanið fyrir næsta sumar og rifja upp það síðasta. Í hjáverkum kusum við svo stjórn og sinntum öðrum aðalfundarstörfum. Sjórn Gaflara fyrir komandi starfsár er óbreytt með Castró, valdlausan en með jakka í broddi fylkingar og okkur hina í humátt á eftir. Að formlegri dagskrá aðalfundar lokinni týndust menn í söngvatnið á meðan beðið var eftir steikinni. Steikin reyndist hinsvegar vera fangelsis kássa að hætti hússins sem menn slöfruðu í sig mis glaðir. Að matnum loknum týndust menn yfir á Aróma þar sem söngvatnið var sötarað fram undir morgun, a.m.k. af sumum.... hvaða tegund af hákarlalýsi er það sem Húni er að drekka ? En umfam allt var dagurinn góður, dagskrá sumarsins spennandi og við getum áram lagt Castró í margelti, svo fjörið blasir við Göflurum á komandi hjólatímabili.
Myndir fá aðalfundi eru í myndasafni.
Nýr heiðurs Gaflari
Það gerðist í skjóli jóla að heiðurs Göflurum fjölgaði um helming. Það var frítt föruneyti Gaflara sem heimsókti Ásgeir Sumarliðason á annan í afmæli á milli jóla og nýárs en hann hélt upp á sjörugs afmæli sitt þann 26.12.2009. Castró okkar Gaflara færið Ásgeiri heiðursskjöld og gull bryddað Gaflara merki til stafestingar heiðurs nafnbótinni „Heiðurs Gaflara númer tvö“. Nú er bara spurning hvort Húni (Gamli-skápur) og Ásgeir (Verðum við ekki að finna eitthvert viðurnefni á hann ?) stofni ekki með sér deild heiðurs Gaflara innan félagsinns ? Gaflarar óska Ásgeiri til hamingju með árin sjötíu og heiðurs nafnbótina !
Hinar mögnuðu hliðar jakkans !
Þær eru nokkar hliðar jakkans þessa dagana.. eða eru jakkarnir kannski fleiri en einn, a.m.k. mætti Castró okkar í leður útgáfunni í dag.. sennilega tilraun til að vera harður og töff. Sú fyrirættlan kappans féll þó með öllu alveg um sig sjálfa þegar hann fór að dásama hænuna ( Suzuki ). Fundur kvöldsinns var hinsvegar hin mesta skemmtun, myndir sumarsinns voru látnar rúlla á varpa og var upprifjunin skemmtileg,
Jakkinn
Fidel Castró sá mæti maður hafði sér ákveðna ásýnd þegar hann kom opinberlega fram. Hann var alltaf með húfuna góðu auk þess sem eitt af hans aðalsmerkjum var græni hermanna jakkinn sem hann var alltaf í, Þetta orsakaði það að þegar um hann er rætt birtist í huga manns mynd af ákveðnum og ráðandi manni. Sigurjón Castró okkar Gaflara berst líka við að skapa sér ámóta ásýnd og nafni hans á Kúbu, þó hallari undir Bush sé, jakkinn hans er úr ekta amerísku gallaefni í orginal lit.
Eirðarlausir Gaflarar
Það er óhætt að segja að fráhvarfs einkennin eru farin að segja til sín og jaðraði við skjálfta og taugakippum í þeim Göflurum sem mættu á mánaðarlegan hitting í félagsheimili Kvartmíluklúbbsins fyrsta þriðjudaginn í desember. Menn kepptust við að hughreista hver annan og lofa því að veturinn verði fljótur að líða. Gulli-Gjald mætti með „heimabakaðar“ jóla smákökur og dáðust menn að því hvað hann var duglegur að föndra og merkja plastöskjurnar sem baksturinn var í.
Bærinn málaður rauður....
Það var föngulegur hópur Gaflara sem safnaðist saman bjartan og blíðan föstudag. Markmiðið var höfuðstaður mótorhjólsins „Akureyri“. Ekki gat nokkur maður kvartað yfir veðrinu sem hópurinn fékk á norðurleiðinni og tökum við ofan fyrir „veðurguðunum“ okkar fyrir rjóma spá (wiskey-ið hlýtur að hafa verið gott) þegar norður var komið söfnuðust menn saman við áfangastaðinn Fögruvík, hristu af sér ferðarikið og svo var hjólað saman inn í bæinn í leit að næringu.
Akureyri "here we come"
Jæja félagar þá fer að líða að Akureyrar túrnum. Planið er að strauja norður upp úr hádegi á föstudeginum 20. júní. Það eru ennþá einhverjar skúffur lausar svo enn er hægt að skrá sig hér. Castró á í Wiskey sambandi við veðurguðinn og hann er búinn að lofa brakandi blíðu alla helgina. Það verður svo hjólað út og suður um norðurlandið og mótorhjólamenning þeirra norðanmanna könnuð. Gististaðurinn er hin undurfagra Fagravík www.fagravik.is þar sem Castró ætlar í pottinn á G-inu svo það er af miklu að missa.
USSS á Ingólfstorgi
Á fundi Umferðarstofu og lögreglu með formönnum hjólaklúbbanna um umferðar öryggi bifhjólamanna kom fram að talsvert hafi verið um kvartanir vegna hávaða frá bifhjólum í miðbæ Reykjavíkur og á Ingólfstorgi. Gaflarar benda félagsmönnum sínum sem og öðrum hjólamönnum á að aka rólega um miðbæinn og vera ekki að þenja fáka sína á Ingólfstorgi svo ekki komi til þess að borgaryfirvöld loki aðgengi hjóla að torginu.
-Castró
Smurdagur
) var haldið af stað í hjólatúr um „umdæmið“. Mætingin var mjög góð og mál manna að smurdagurinn sé kominn til að vera.....Formaðurinn í fjölmiðlum
Ég hef verið í þessu bílasporti frá árinu 1974,“ segir Sigurjón Andersen smiður, en hann á sannkallað tryllitæki í bílskúrnum hjá sér. „Ég á Plymouth Roadrunner 1972 árgerð. Hann er einn af 7.628 smíðuðum eintökum af þeirri gerð,“ segir Sigurjón en bíllinn er annar tveggja þeirrar tegundar hér á landi. Hann keypti bílinn árið 1981 en hann hafði verið fluttur til landsins 1975. „Hann kostaði á fjórðu milljón á sínum tíma, án þess að ég muni töluna nákvæmlega. Þetta var allavega heilmikill peningur á þeim tíma,“ segir hann.


