Saturday, 22 February 2025 09:18

Heiðursfélagi látinn

Hilm­ar Fjeld­sted Lúth­ers­son, pípu­lagn­inga­meist­ari og mótor­hjóla­maður, lést að heim­ili sínu 20. fe­brú­ar síðastliðinn, 86 ára að aldri.

Hilm­ar var fædd­ur 26. ág­úst 1938 í Reykja­vík. For­eldr­ar hans voru Lúther Salómons­son og Sveins­ína Odds­dótt­ir. Systkini Hilm­ars voru Sverr­ir (sam­feðra), Sig­ríður, Jó­hann og Reyn­ir.

Hilm­ar bjó í Kópa­vogi frá fjög­urra ára aldri en flutt­ist á Sel­foss árið 2004 og síðan til Hafn­ar­fjarðar 2015. Hann kvænt­ist eft­ir­lif­andi konu sinni, Guðmundu Kol­brúnu Guðmunds­dótt­ur, árið 1963. Þau bjuggu í Lund­ar­brekku í Kópa­vogi og vann Hilm­ar við pípu­lagn­ir. Þau fluttu um 1980 að Hlíðar­vegi 5a. Þar var góður bíl­skúr og fór Hilm­ar að rækta mótor­hjóla­bakt­erí­una.

Einn stofn­enda Snigl­anna

Hilm­ar var einn af stofn­fé­lög­um Bif­hjóla­sam­taka Lýðveld­is­ins, Snigla. Við stofn­un sam­tak­anna árið 1984 var hann nokkru eldri og reynd­ari en flest­ir hinna. Hann naut óskoraðrar virðing­ar inn­an hóps­ins og var út­hlutað Snigla­núm­er­inu #1 í heiðurs­skyni. Í þeim hópi var hann æv­in­lega nefnd­ur „Old Timer“ og smám sam­an varð hann ein­fald­lega „Tæm­er­inn“.

Eft­ir því sem árin færðust yfir varð Hilm­ar öt­ulli við að gera upp göm­ul mótor­hjól. Hann varð ótrú­lega lag­inn við þá iðju og nask­ur að finna eða smíða vara­hluti sem flest­ir höfðu talið al­veg ófá­an­lega. Eft­ir hann liggja fjöl­mörg listi­lega vel upp­gerð mótor­hjól af öll­um stærðum og gerðum sem hætt er við að ella hefðu farið fyr­ir lítið.

Börn þeirra Hilm­ars og Guðmundu eru Auður Sól­veig, Atli (lést 1998), Sveinn Fjeld­sted og Hrafn­hild­ur Fjeld­sted.

Félagar hans í Göflurum senda ættingjum hans og vinum hugheilar samúðarkveðjur, en útför Hilmars mun fara fram föstudaginn 7. mars kl 13:00. Nánar verður tilkynnt um tilhögun hennar þegar nær dregur.

 

Read 1749 times Last modified on Saturday, 22 February 2025 11:19