tekið af bifhjol.is
Honda frumsýndi í síðustu viku nýtt Rebel á long Beach mótorhjólasýningunni í Kaliforníu. Vélin kemur úr CBR500R og er átta ventla 471 rsm, skilar 45 hestöflum og sama magni af togi. Þannig fellur þetta flotta hjól undir minnaprófið en því miður er það einungis til sölu í Bandaríkjunum eins og er. Það gæti þó allt komið til með að breytast ef lög um tollamúra ná fram að ganga, en þau munu setja tolla á hjól undir 500 rsm.