tekið af mbl.is
Ástralska fyrirætkið Vozz (www.vozzhelmets.com) kynnti fyrir skemmstu til sögunnar byltingarkenndan mótorhjólahjálm.
Felst sérstaða Vozz-hjálmsins einkum í því að í stað þess að þurfa að stinga höfðinu inn um op á botni hjálmsins er hægt að opna aftari hluta hjálmsins og smeygja honum yfir kollinn nánast eins og grímu.
Þessi hönnun hefur marga kosti í för með sér. Liggur hjálmurinn t.d. langt undir hökuna og þarf ekki að skorða hann fastan með ól. Þegar hjálmurinn er kominn á sinn stað situr hann pikkfastur og loft leitar ekki upp undir hjálminn á ferð.
Til að tryggja að þeir passi fullkomlega eru Vozz-hjálmarnir gerðir í þremur skeljastærðum og með með þremur stærðum af fóðri. Með því að velja rétta skel og rétta fóðrun á hjálmurinn að smella eins og flís við rass, sama hvernig höfuðið er í laginu.
Merkilegur öryggiseiginleiki við hönnunina er að hægt er að smeygja hjálminum af höfðinu án þess að þurfa að toga. Ef mótorhjólamaður hefur lent í slysi og viðbragðsaðilar þurfa að taka af honum hjálminn án tafar þá er það hægt núna án þess að eiga t.d. á hættu að valda óvart skaða á mænu eða hrygg.
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.