Wednesday, 23 December 2015 17:44

Mótorhjól bönnuð í Pikes Peak

tekið af visir.is

Mótorhjólakappi klárar Pikes Peak keppnina.

Mótorhjólakappi klárar Pikes Peak keppnina. JALOPNIK

Frægasta brekkuklifurkeppni heims er Pikes Peak keppnin í Colorado í Bandaríkjunum. Þar keppa ökumenn á hverju ári hver er fljótastur að klifra upp fjallið Pikes Peak um 20 km leið og í leiðinni klifra upp 1.440 metra.

Þessi keppni hefur krafist margra mannslífa og í síðustu tveimur keppnum dóu tveir mótorhjólamenn og í kjölfar þess hafa keppnishaldarar bannað mótorhjól í næstu keppni. Mótorhjól hafa aðeins tekið þátt síðustu fimm ár, en fyrir það var partur af leiðinni ennþá ómalbikaður og því ekki grundvöllur fyrir þátttöku þeirra.

Mikil reiði er á meðal þeirra mótorhjólamanna sem hugsað höfðu sér að taka þátt í næstu keppni. Met mótorhjóla í Pikes Peak var sett fyrsta árið sem brautin var öll malbikuð, árið 2011 og tími þess 9:52,82 mínútur, en besti tími sem náðst hefur á bíl er 8:13,88, sett af rallökumanninum Sebastian Loeb árið 2013, en hann ók Peugeot 208 T16 bíl.

Read 2738 times