tekið af mbl.is
Mörgum þykir tvígengisvélar hafa skemmtilega eiginleika. Þær eru til muna einfaldari en fjórgengisvélar, léttari og skila hlutfallslega miklum krafti miðað við stærð vélar.
Gallinn er sá að þessi tegund véla ku nokkuð gjörn á að spúa reyk og óbrenndu eldsneyti og fellur því ekki vel að nýjustu umhverfisverndarstöðlum.
Fyrr í mánuðinum lagði Honda inn umsókn um einkaleyfi á áhugaverðri tvígengisvélarhönnun. Á nýja hönnunin að hafa mjög áhugaverða eiginleika. Vélin er með beinni innspýtingu sem á að skila hreinni bruna og betri kælingu á stimplum.
Það voru vökulir blaðamenn Morebikes sem komu auga á umsóknina en þar má sjá að innspýtingin úðar eldsneyti inn í strokkinn þegar stimpillinn er nærri toppinum svo að óbrunnið eldsneyti fer síður burt með útblástursgufunum. Er innspýtingunni miðað þannig að bæði strokkur og stimpill geta kólnað ögn þegar eldsneytisúðinn kemst í snertingu við yfirborð þeirra og byrjar að gufa upp.
Hönnunin á að vera tiltölulega einföld í smíðum sem hjálpar til að draga úr framleiðslukostnaði sem og viðhaldi.
Áhugavert er að af orðalagi einkaleyfisumsóknarinnar má ráða að Honda ætlar ekki endilega að binda nýju hönnunina við mótorhjól eingöngu og ætti einföld vélin að geta knúið áfram ýmiss konar tæki.
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.