Í dag, föstudaginn 5 júli, var brotist inn hjá einum félaga okkar sem býr á Álftanesi.
Ýmsu var stolið, m.a. tölvum og þess háttar tækjum ásamt mótorhjólinu hans, hjálmi og galla..
Þetta er Suzuki Bandit 1200 með skráningarnúmerinu BA230.
Ágætu félagar, hafið augun opin og látið vita ef þið verið varir við hjólið í síma:
892 5665, Kristján G Kristjánsson.
Stjórnin